Grillburstinn
Grill Daddy™ Pro gufugrillburstinn
Grill Daddy™ Pro gufugrillburstinn
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Gufugrillburstinn fyrir alla grillara
Pro gufugrillburstinn okkar er næsta skref í grillburstum á eftir upprunalegu burstunum. Hann er lengri og heldur meira vatni en upprunalegi grillburstinn. Vatnsventill Pro burstans er einnig stillanlegur svo hægt er að stilla vatnsflæðið eftir þörfum, frá litlu upp í mikið.
Eins og á öllum okkar burstum er greiðan sjálf úr gæða ryðfríu stáli. Burstinn er síðan úr hitaþolnu ABS plasti.
Hægt er að skipta út greiðunni sjálfri svo ekki er þörf að kaupa algjörlega nýjan bursta.
Notkunarleiðbeiningar
Byrjaðu á því að hita grillið vel.
Vertu viss um að vatnsventillinn sé lokaður og fylltu vatnsgeyminn af vatni.
Opnaðu fyrir vatnið með vatnsventlinum og byrjaðu að hreinsa burt matarleifar og fitu, þvert á grillgrindina, með grillið í gangi. Við notkun losnar vatn úr burstanum, sem breytist í gufu þegar það kemst í tæri við heitt grillið og losar óhreinindi. Burstinn sér síðan um að taka óhreinindin í burtu.
Snúðu burstanum við til að þrífa erfiða staði.
Notaðu vatnsventilinn til að stilla flæði vatnsins.
Eftir notkun
Tæmdu vatnsgeyminn og hafðu vatnsventilinn í opinni stöðu.
Varist eftirlíkingar! Við seljum einungis Grill Daddy™ gufugrillbursta framleidda í Bandaríkjunum!
Share
