Farðu í vöruupplýsingar
1 af 3

Grillburstinn

Grill Daddy™ gufugrillburstinn

Grill Daddy™ gufugrillburstinn

Venjulegt verð 4.800 ISK
Venjulegt verð Söluverð 4.800 ISK
Útsala Uppselt
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Gufugrillburstinn frá Grill Daddy™ 

Þessi gufugrillbursti er einfaldasti grillburstinn okkar fyrir alla grilláhugamenn. Vírahárin eru fest með sérstakri tækni sem heldur hárunum á sínum stað. Gufugrillburstinn er gerður úr hitaþolnu endurunnu ABS plasti sem stenst allar kröfur.

Gufugrillburstann má nota á ryðfrítt stál, keramik og járngrill.

Fullkominn grillbursti á pallinn eða í útileguna.

Burstann sjálfan má skipta út þannig að þú þarft ekki að kaupa alveg nýjan bursta í hvert skipti!

Hvernig virkar gufugrillbursti?

Í burstanum er vatnsgeymir sem hleypir vatni í gegnum burstann. Þegar að vatnið kemst í tæri við heitt grillið breytist það í gufu og hreinsar, með hjálp burstans, öll þau óhreinindi, fitu og matarleifar sem safnast hafa á grillið, með ótrúlegum árangri.

Notkunarleiðbeiningar

Byrjaðu á því að hita grillið vel.

Vertu viss um að vatnsventillinn sé lokaður og fylltu vatnsgeyminn af vatni.

Opnaðu fyrir vatnið með vatnsventlinum og byrjaðu að hreinsa burt matarleifar og fitu, þvert á grillgrindina, með grillið í gangi. Við notkun losnar vatn úr burstanum, sem breytist í gufu þegar það kemst í tæri við heitt grillið og losar óhreinindi. Burstinn sér síðan um að taka óhreinindin í burtu.

Snúðu burstanum við til að þrífa erfiða staði.

Notaðu vatnsventilinn til að stilla flæði vatnsins.

Eftir notkun

Tæmdu vatnsgeyminn og hafðu vatnsventilinn í opinni stöðu.

Varist eftirlíkingar! Við seljum einungis Grill Daddy™ gufugrillbursta framleidda í Bandaríkjunum!

Skoða allar upplýsingar