Farðu í vöruupplýsingar
1 af 3

Grillbursti

Grill Daddy™ upprunalegi gufugrillburstinn

Grill Daddy™ upprunalegi gufugrillburstinn

Venjulegt verð 3.900 ISK
Venjulegt verð Söluverð 3.900 ISK
Útsala Uppselt
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Upprunalegi gufugrillburstinn!

Þetta er upprunalegi gufugrillburstinn sem er þó endurbættur, meðal annars með stærri vatnsgeymi og stillanlegu vatnsrennsli. Burstinn lítur nú betur út með burstaðri áferð. Sem endranær þrífur hann grillið þitt fljótt og auðveldlega með hjálp gufu.

Burstinn er úr hitaþolnu ABS plasti og greiðurnar á burstanum eru úr ryðfríu stáli.

Burstann má nota á ryðfrítt stál, keramik og járngrill.

Grill Daddy gufugrillburstinn er fullkominn fyrir þrif á litlum grillum. Burstinn sjálfur er gerður úr ryðfríu stáli. Fyrir stærri grill og erfiðari þrif mælum við með Pro eða Platinum burstanum!

Hægt er að skipta út burstanum sjálfum þannig að óþarfi er að kaupa algjörlega nýjan bursta.

Hvernig virkar gufugrillbursti?

Í burstanum er vatnsgeymir sem hleypir vatni í gegnum burstann. Þegar að vatnið kemst í tæri við heitt grillið breytist það í gufu og hreinsar, með hjálp burstans, öll þau óhreinindi, fitu og matarleifar sem safnast hafa á grillið, með ótrúlegum árangri.

Notkunarleiðbeiningar

Byrjaðu á því að hita grillið vel.

Vertu viss um að vatnsventillinn sé lokaður og fylltu vatnsgeyminn af vatni.

Opnaðu fyrir vatnið með vatnsventlinum og byrjaðu að hreinsa burt matarleifar og fitu, þvert á grillgrindina, með grillið í gangi. Við notkun losnar vatn úr burstanum, sem breytist í gufu þegar það kemst í tæri við heitt grillið og losar óhreinindi. Burstinn sér síðan um að taka óhreinindin í burtu.

Snúðu burstanum við til að þrífa erfiða staði.

Notaðu vatnsventilinn til að stilla flæði vatnsins.

Eftir notkun

Tæmdu vatnsgeyminn og hafðu vatnsventilinn í opinni stöðu.

Varist eftirlíkingar! Við seljum einungis Grill Daddy™ gufugrillbursta framleidda í Bandaríkjunum!

Skoða allar upplýsingar